22.05.1981
Neðri deild: 106. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4886 í B-deild Alþingistíðinda. (5206)

320. mál, raforkuver

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vek athygli á því, að úrslit þessarar atkvgr. ráðast af hv. 6. þm. Suðurl. Hann hefur marglýst því yfir, að hann treysti iðnrh. ekki til þess að taka í neinu mark á þeirri brtt., sem hér eru greidd atkv. um, en vill af öðrum ástæðum ótilgreindum samt sem áður fylgja till. Ég segi nei.