23.05.1981
Neðri deild: 109. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4988 í B-deild Alþingistíðinda. (5329)

314. mál, stálbræðsla

Frsm. (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. iðnn. um frv. til l. um stálbræðslu. Nefndin fjallaði um frv. á fundi sínum í morgun og kvaddi til nokkurn hóp sérfræðinga og hagsmunaaðila. Svöruðu þeir spurningum nm. og gáfu ýmsar upplýsingar. Þetta mál hefur verið allítarlega og vel rætt í hv. iðnn. Ed. og gerðar veigamiklar breytingar á frv. Iðnn. Nd. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Ed. Einstakir nm. áskilja sér þó rétt til þess að fylgja brtt.