24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2655 í B-deild Alþingistíðinda. (2282)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti, 6. þm. Norðurl. e., hélt því fram áðan að annaðhvort segði ég ósatt eða 1. þm. Norðurl. v. (Gripið fram í: Eða báðir.) Það hefur komið í ljós að hvorugur hefur sagt ósatt, og ég vænti þess, að hann stilli skap sitt næst þegar hann áttar sig á eigin frumhlaupi.