02.03.1982
Sameinað þing: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2745 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (Jón Helgason):
Mér hafa borist tvö bréf:
„Alþingi, 25. febr. 1982.
Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurlands vestra, hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum get ég ekki setið þingfundi á næstunni, og leyfi mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandi vestra, Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Sverrir Hermannsson,
forseti Nd.“
Hannes Baldvinsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og hefur kjörbréf hans því verið rannsakað og býð ég hann velkominn til starfa.
Það síðara er svohljóðandi:
„Alþingi, 26. febr. 1982.
Ingvar Gíslason, 1. þm. Norðurlands eystra, hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, Níels Á. Lund æskulýðsfulltrúi, Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Sverrir Hermannsson,
forseti Nd.“
Níels Á. Lund hefur einnig átt sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa.