02.11.1981
Neðri deild: 8. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

14. mál, jarðalög

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Þetta er í þriðja skipti sem tillaga er gerð um að vísa máli til nefndar sem augljóst virðist að það eigi ekki heima í. Menn geta ekki kosið máli nefnd eftir skipan nefndanna, heldur eftir eðli málsins, og fyrir því er það, herra forseti, að ég legg til að þessu máli verði vísað til landbn., svo augljóst sem virðist að það eigi þar heima.