25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3258 í B-deild Alþingistíðinda. (2886)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það er hálfkátlegt að hlusta á aths. manna við þessa brtt. og kröfur um nafnakall og annað þess háttar, því að ef menn hyggja vel að, sjá þeir að breytingin er fólgin í því einu að dagsetningin 16. jan. verður að 1. jan. Það er stórmálið sem við erum að greiða atkv. um nú. Ég segi já.