05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3643 í B-deild Alþingistíðinda. (3185)

222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vildi bara að það kæmi fram vegna síðustu orða hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, að ég kom með þessar lánareglur á fund hjá landbn. og geta allir nm. borið það með mér að formaður nefndarinnar, hv. þm. Stefán Valgeirsson, sagði að það væri búið að samþykkja þessar reglur. Þess vegna tók ég fram að búið væri að samþykkja þær.