04.11.1981
Neðri deild: 9. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (327)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil ítreka spurningu hv. 1. þm. Vestf. til hæstv. sjútvrh. Hún er þess efnis, hvort vonir stæðu til þess að þm. gætu fengið sem trúnaðarmál þá skýrslu um vanda sjávarútvegsins, sem hér hefur verið vitnað til, svo þeir geti gert sér grein fyrir þeim erfiðleikum sem þessi undirstöðuatvinnuvegur á við að stríða.