21.04.1982
Neðri deild: 67. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4070 í B-deild Alþingistíðinda. (3627)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 21. apríl 1982. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson lektor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Guðmundur G. Þórarinsson,
12. þm. Reykv.“
Haraldur Ólafsson hefur áður átt sæti á þessu þingi.
Þarfnast kjörbréf hans því ekki rannsóknar. Býð ég hann velkominn til starfa.
Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, frv. (þskj. 61). — Frh. 3. umr.