28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4295 í B-deild Alþingistíðinda. (3957)

30. mál, lyfjadreifing

Jón Helgason:

Herra forseti. Eins og kom fram hjá frsm. nefndarinnar skrifaði ég undir þetta nál. með fyrirvara. Ástæða þess er sú, að ég gat ekki fallist á 20. brtt. nefndarinnar, þ.e. við 58. gr. Ég legg til, að hún verði óbreytt eins og frv. var lagt fram, og mun því greiða atkv. gegn þessari brtt.