18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)

136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég tel mjög eðlilegt að samþykkja þessa till. vegna þess að það er verið að létta byrðum af fólkinu í landinu með þessu. Einhvern tíma og einhvers staðar hefur maður séð það í málgagni þeirra sjálfstæðismanna að þeir vildu taka þátt í því. Þess vegna kemur mér á óvart afstaða þeirra hér í deild. Kannske er það sýndarmennska, kannske eitthvað annað. En ég segi já.