27.10.1982
Efri deild: 5. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 27. október 1982.

Þar sem ég vegna veikindaforfalla mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni óska ég þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Ólafur Jóhannesson,

5. þm. Reykv.

Haraldur Ólafsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því eigi að rannsaka kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.