24.01.1983
Neðri deild: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (1269)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. greindi hér frá samkomulagi sem gert hefði verið um að umr. lyki hér fyrir ákveðinn tíma. Ég vil aðeins fara fram á, þið einstaklingar hér í þessu háa húsi sem stöðugt hafið mannasiði á vör, að það gildi þá jafnt um þá sem hér eru. Ég undirstrika að ég hef ekki verið aðili að neinu slíku samkomulagi.