01.02.1983
Sameinað þing: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1394)

Þingsköp

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég get skýrt frá því að ég lét ræða við framkvæmdastjóra Alþjóðahvalveiðiráðsins núna fyrri partinn í dag og við höfum frest til að senda inn mótmæli. Þeir munu halda sínum telex opnum til miðnættis á morgun. Það mun vera sami tími í London og hér. Ég mun því ekki senda mótmælin fyrr en um kvöldið. Menn geta því sofið á þessu í nótt.

Forseti tók öll dagskrármál 44. fundar af dagskrá.