09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2828 í B-deild Alþingistíðinda. (2771)
230. mál, almannatryggingar
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég bendi á að málið er komið í atkvgr., umr. er lokið og útilokað að það fari neitt til nefndar á því stigi málsins. Ég tek hins vegar um það ákvörðun að genginni þessari atkvgr. að 3. umr. fari í fyrsta lagi fram á morgun. Þá gefst mönnum tækifæri til þess að fá svör við fsp. sínum. Ég ítreka að alveg er útilokað að frv. fái sérstaka meðferð eftir að það er komið í atkvgr.