09.03.1983
Neðri deild: 58. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (2786)

188. mál, sala Þjóðólfshaga I í Holtahreppi

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá landbn. Nd. varðandi frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja jörðina Þjóðólfshaga I í Holtahreppi í Rangárvallasýslu.

Nefndin hefur fjallað um málið og rætt við forstöðumann jarðeignadeildar ríkisins, sem veitti nefndinni upplýsingar um þau atriði sem hún óskaði eftir að fá skýringar við. Við þá athugun, sem nefndin hafði uppi, kom ekki neitt það fram sem mælti gegn því að slík heimild yrði veitt sem er farið fram á í þessu frv. Fyrir því leggur landbn. til við hv. Nd. að frv. verði samþykkt óbreytt.