10.03.1983
Sameinað þing: 62. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2862 í B-deild Alþingistíðinda. (2836)

172. mál, varnir vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það er rétt að það hefur ekki verið talin skynsamleg regla eða starfsaðferð á þessu stigi málsins að fara út í það að semja lagafrv. Það hefur ekki verið undirbúið og er ekki í undirbúningi. Það er verið að reyna að vinna að málinu með öðrum hætti, eins og ég hef reynt að skýra fyrir hv. 4. þm. Vestf. þegar í tveimur ræðum.