16.11.1982
Sameinað þing: 17. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (358)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Jón Helgason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 11. nóvember 1982.
Hjörleifur Guttormsson, 5. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Sverrir Hermannsson,
forseti Nd.“
Sveinn Jónsson hefur áður átt setu á Alþingi á þessu kjörtímabili og rannsókn kjörbréfs þá farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa.