17.11.1982
Neðri deild: 10. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

71. mál, vernd barna og ungmenna

Flm. (Níels Á. Lund):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Gunnarssyni fyrir þær undirtektir sem þessi brtt. fékk hjá honum og vil ég aðeins bæta því við að þetta mun ekki leiða til aukins kostnaðar fyrir hið opinbera og vil enn undirstrika þá ósk mína að máli þessu verði hraðað í gegnum nefnd og verði afgreitt frá hv. Alþingi sem fyrst.