28.11.1983
Efri deild: 22. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)

78. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Á þskj. 83 er frv. til l. um breytingu á áfengislögum nr. 82/1969. Sams konar frv. var flutt á síðasta Alþingi og er eins konar fylgifrv. með frv. um breytingu á lögum um tollheimtu og tolleftirlit á þskj. 58, sem flutt hefur verið af fjmrh. og er til meðferðar hér í þessari hv. deild. Er þar gert ráð fyrir breyttum reglum um meðferð varnings sem er í skipum eða öðrum farkostum sem koma til landsins. Til þess að ákvæði þess frv. nái tilgangi sínum þarf jafnframt að breyta tilsvarandi ákvæði í áfengislögum og er frv. þetta flutt til að samræmis gæti að þessu leyti. Jafnframt er með frv. lagt til að landhelgi samkv. áfengislögum verði framvegis hin sama og almenn landhelgi, þ.e. 12 sjómílur. Er það einnig til samræmis við áðurnefnt frv. sem gerir ráð fyrir að tollalögsagan verði 12 sjómílur.

Mér hefur borist athugasemd frá áfengisvarnaráði sem hv. nefnd, sem um þetta fjallar, mun fá til meðferðar. Dregið er í efa að þarna sé um réttmætar breytingar að ræða. Ég vil af því tilefni leggja áherslu á að heimild til innsiglunar er eftir sem áður fyrir hendi ef tollgæslan telur það æskilegt og reynslan leiðir það í ljós. Hins vegar er hér um rýmkun að ræða á möguleikum þeirra til vinnubragða sem þeir vænta að leiði til betri árangurs í þeirra starfi.

Hæstv. forseti. Ég legg til að frv. þessu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.