25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
„Neðri deild, 25. okt. 1983. Formaður þingflokks sjálfstæðismanna hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Samkvæmt beiðni Ragnhildar Helgadóttur, 10. þm. Reykv., sem er erlendis í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður hennar, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki á meðan sæti hennar á Alþingi. Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt ásamt ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að taka meðfylgjandi
kjörbréf Guðmundar H. Garðarssonar til rannsóknar. Verður gefið á meðan fundarhlé í 5 mínútur. Fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]