17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki út af fyrir sig að gera aths. við túlkun 1. flm., en engu að síður mætti bera þessa till. upp og láta hana vísa til 1. gr. eins og hún er nú orðuð eftir atkvgr. hér í deildinni með þeim skilningi að þrátt fyrir að þar sé ráðh. falið þetta vald skuli hann engu að síður fyrir fiskveiðistefnu næsta árs bera það upp hér á Alþingi.