20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2253 í B-deild Alþingistíðinda. (1979)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég vil taka fram að það er sjálfsagt að taka tillit til ábendinga hæstv. heilbr.- og trmrh. Það mun vera svo, að mörkin sem rétt er að miða við eru 1. apríl, en ekki 1. júní. Skrifstofustjóri var raunar búinn að vekja athygli mína á því. Ég hygg að það sé augljóst mál að þetta verði leiðrétt.