07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2612 í B-deild Alþingistíðinda. (2283)

408. mál, sumarbústaðir að Hellnum

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir upplýsingarnar, og ég læt það álit mitt í ljós, að þessi fsp., sem borin var fram á haustmánuðum, hafi átt nokkurn þátt í því að dómur var loks upp kveðinn í máli þessu.