09.02.1984
Sameinað þing: 46. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2763 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)

172. mál, hagnýting Íslandsmiða utan efnahagslögsögunnar

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Mér finnst ástæða til að láta það koma fram að í framhaldi af umr. áðan hef ég haft samband bæði við hæstv. forsrh. og hæstv. sjútvrh. Þeir eru báðir uppteknir á áríðandi fundum en ég fékk þær upplýsingar að þegar í morgun var haft samband við Pétur Thorsteinsson sendiherra um þessi mál. Hann er núna að ganga frá dagskýrslu um þetta mál og hefur verið í sambandi við bæði fulltrúa hjá Efnahagsbandalaginu og Grænlendinga. Það er sem sagt verið að vinna í málinu. Ég vildi láta þetta koma hér fram svo að hv. þm. viti að ríkisstj. er þegar að vinna í þessu máli og mun halda því áfram.