23.02.1984
Sameinað þing: 56. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3108 í B-deild Alþingistíðinda. (2699)

Varamaður tekir þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 22. febr. 1984.

Guðrún Helgadóttir, 10. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþb., Kjartan Ólafsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Þá hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 22. febr. 1984.

Alexander Stefánsson, 2. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Jón Sveinsson lög­fræðingur, Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta tilkynnist yður hér með, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Þá hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 22. febr. 1984.

Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna þingsetu 1. varaþm. taki 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjör­dæmi, Bragi Michaelsson framkvæmdastjóri, Kópa­vogi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns. Ingvar Gíslason, forseti Nd.

Með bréfum þessum fylgja kjörbréf viðkomandi manna og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að rannsaka þessi kjörbréf, en á meðan verður fund­inum frestað. — )Fundarhlé.]