06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4536 í B-deild Alþingistíðinda. (3881)

266. mál, sala ríkisjarðarinnar Selárdals í Suðureyrarhreppi

Forseti (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Svar við fsp. er að hér um fullkomlega eðlilega afgreiðslu að ræða. Það er áratuga kannske aldavenja á hv. Alþingi að ef slík mál koma upp eftir að fjárlög hafa verið afgreidd eru flutt um það sérstök frv. Ég vek athygli á að á dagskrá eru þrjú frv. sama eðlis.