18.05.1984
Efri deild: 105. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6219 í B-deild Alþingistíðinda. (5644)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Lárus Jónsson:

Virðulegi forseti. Vegna auglýsingar Seðlabankans í gær um lækkun endurkaupa afurðalána af viðskiptabönkunum samþykki ég þetta ákvæði í trausti þess að ríkisstj. beiti því með mikilli varúð að bindiskyldan verði lækkuð á móti minni endurkaupum Seðlabankans. Ég segi já.