19.05.1984
Neðri deild: 100. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6343 í B-deild Alþingistíðinda. (5841)

153. mál, höfundalög

Frsm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Nefndin hefur athugað höfundalög og fékk á sinn fund fulltrúa frá menntmrn., fjmrn. og Samtökum eigenda flutningsréttar og ræddi ítarlega efni málsins. N. var sammála um að mæla með samþykkt frv. nú á þessu þingi, enda er málið mjög brýnt og þarf að ná fram að ganga.