22.05.1984
Sameinað þing: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6563 í B-deild Alþingistíðinda. (6156)

335. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Með samþykkt þessarar till. er Alþingi að veita hæstv. iðnrh. heimild til að semja um auknar stóriðjuframkvæmdir hér á landi og aukin ítök erlendra aðila í íslensku efnahagslífi. Slík áform stefna í hættu hag landsmanna allra í náttúru þessa lands og sjálfstæði þessarar þjóðar. Ég segi því nei.