15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

56. mál, norrænt sjónvarpssamstarf

Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka mjög ákveðið undir það sem kom síðast fram hjá hæstv. menntmrh., að það fari fram athugun á því hið allra fyrsta hver sé líkleg þróun í sambandi við sjónvarpssendingar hér innanlands og möguleika á kapalkerfum, æskilegri útbreiðslu þeirra og tæknilegum möguleikum í því sambandi þannig að það liggi í rauninni fyrir við athuganir þessara mála og að viðeigandi yfirvöld beiti sé fyrir slíkri úttekt.