04.12.1984
Sameinað þing: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1554 í B-deild Alþingistíðinda. (1024)

93. mál, kynning á líftækni

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir upplýsingarnar um nefndarskipunina og að nefndin hafi þegar hafið störf. Það er rétt til getið hjá hæstv. ráðh. að ég legg á það ríka áherslu að nefndinni sé gert kleift að starfa eins og til var stofnað með því að hún fái fjármuni, eins og talað var sérstaklega um og reyndar tiltekið í grg. með þál. á sínum tíma.