12.12.1984
Neðri deild: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)

179. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka form. n. hv. 3. þm. Norðurl. e. og nefndinni allri fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessu og raunar á næsta máli hér einnig á dagskrá. Ég er mjög ánægður með að frv. hefur fengið svo greiða leið því að því liggur á að verða að lögum um áramót margra hluta vegna.