12.12.1984
Neðri deild: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)

189. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Frv. það sem ég mæli hér fyrir til 1. umr. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði hefur þegar hlotið meðferð í hv. Ed. Eins og þingheimi er kunnugt var skattur þessi fyrst lagður á 1979 og hefur verið allar götur síðan. Ég hef reyndar margoft lýst því yfir að mér sé í nöp við skattheimtu af þessu tagi, en staða ríkissjóðs er þannig að hann má alls ekki við því að afsala sér þessum tekjum. Í ljósi þessa þykir ekki verða hjá því komist enn um sinn að innheimta sérstakan skatt af skrifstofu- og verslunarhúsnæði.

Eins og sjá má í frv. að fjárlögum fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framhald verði á þessari skattlagningu. Áætlað er að álagning skattsins nemi 95 millj. kr. en að innheimta hans komi til með að skila um 85 millj. kr. að meðtöldum eftirstöðvum fyrra árs. Frv. þetta er efnislega alveg eins og lög nr. 74/1983 er vörðuðu álagningu og innheimtu skattsins í ár. Skatthlutfallið verður óbreytt frá fyrri lögum eða 1.1% af skattstofni sem er fasteignamatsverð í árslok 1984.

Virðulegi forseti. Ég tel ekki þörf á að ræða frekar um frv. þetta að sinni, enda er hér aðeins um að ræða árs framlengingu á skatti sem varað hefur í fimm ár, þótt tímabundinn hafi átt að vera í fyrstu. Að svo mæltu legg ég til að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.