20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3073 í B-deild Alþingistíðinda. (2557)

111. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Þáltill. sú sem hv. síðasti ræðumaður minntist á var samþykkt í tíð fyrrv. ríkisstj. og mun þá hafa verið falin heilbrrh. til meðferðar og afgreidd þannig að fyrrv. heilbrrh. skipaði fjölmenna nefnd til þess að fjalla um þau mál. Þessi nefnd mun enn þá vera að störfum en hafa skilað áfangaáliti til hæstv. heilbrrh. sem ekki hefur, að ég veit, tekið neinar ákvarðanir í málinu frekar. Veit ég ekki hvenær er að vænta niðurstöðu af þeim nefndarstörfum.