26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3846 í B-deild Alþingistíðinda. (3199)

374. mál, vatnstaka Íslandslax hf. í Grindavík

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal að gefnu tilefni ítrekað, sem sagt var áðan, að við höldum okkur við þingsköp í þessum umr. Þm. mega vita að það eru takmörk fyrir því hvað ráðh. sem aðrir mega tala oft. Þess vegna er ekki hægt að ætlast til þess að þeir ráðh. sem ekki hafa leyfi til þess að tala oftar gefi svarað spurningum sem koma fram til þeirra.