10.04.1985
Neðri deild: 54. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4111 í B-deild Alþingistíðinda. (3437)

226. mál, vélstjórnarnám

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti menntmn. um frv. til laga um vélstjórnarnám. Álitið er á þskj. 667. Þetta frv. er komið frá hv. Ed. þar sem það hefur verið samþykkt óbreytt og menntmn. mælir einróma með því að frv. verði samþykkt eins og það er komið frá hv. Ed.