29.10.1984
Neðri deild: 7. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 560 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ingvar Gíslason):

Mér hefur borist svofellt bréf:

„Reykjavík, 29. okt. 1984.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.“

Undir skrifar Hjörleifur Guttormsson 5. þm. Austurl.

Sveinn Jónsson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans hefur verið rannsakað. Hann er hér kominn til fundar. Ég býð Svein Jónsson velkominn til starfa á Alþingi.