17.04.1985
Efri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4302 í B-deild Alþingistíðinda. (3619)

416. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð um atkvgr. Ég hafði ekki lagt til að þessu frv. yrði vísað til fastanefndar. Fram kom till. frá hv. 3. þm. Norðurl. v. um að vísa frv. til hv. allshn. Þegar svo var komið var meðferð málsins frestað að minni tillögu. Nú geri ég þá till. í samráði við alla þingflokkana að málinu verði vísað til sérstakrar nefndar skipaðrar níu mönnum.