07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4869 í B-deild Alþingistíðinda. (4149)

76. mál, endurreisn Viðeyjarstofu

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Mér verður á að spyrja hv. frsm. allshn. hvort niðurstaða nefndarinnar sé raunhæf, að framkvæmdum sem till. stefnir að verði lokið í ágúst 1986. Ef þessar framkvæmdir eru ekki viðameiri en þessi tímasetning gefur til kynna, þá er það gott, en ef hér er um eitthvert meiri háttar verk að ræða held ég að varlegt væri að hafa aðra tímasetningu heldur en hér kemur fram.