05.11.1984
Sameinað þing: 14. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Forseta hefur borist svohljóðandi bréf:
„Alþingi, 1. nóv. 1984.
Tómas Árnason, 4. þm. Austurl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“ Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Salome Þorkelsdóttir,
forseti Ed.“
Jón Kristjánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann velkominn til starfa.
Þá hefur forseta borist svohljóðandi bréf:
„Alþingi, 5. nóv. 1984.
Guðrún Agnarsdóttir, 3. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Samtaka um kvennalista, Málmfríður Sigurðardóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Með því að Málmfríður Sigurðardóttir hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður þarf að rannsaka kjörbréf hennar sem hér fylgir með. Ég leyfi mér að óska eftir að hv. kjörbréfanefnd taki kjörbréfið til athugunar. Á meðan er fundinum frestað í fimm mínútur. — [Fundarhlé.]