12.06.1985
Efri deild: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6374 í B-deild Alþingistíðinda. (5776)

86. mál, áfengislög

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Við sem fluttum till. við 2. umr. málsins um að þjóðaratkvgr. yrði látin fara fram um þetta mál höfum flutt við þessa umr. brtt. um að lögin öðlist þegar gildi. Það vantaði inn í frv. eins og það hafði verið afgreitt við 2. umr. vegna þess að í gamla frv. hafði verið bráðabirgðaákvæði sem bersýnilega gat ekki átt við. Till. skýrir sig því sjálf.