19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6941 í B-deild Alþingistíðinda. (6268)
86. mál, áfengislög
Kjartan Ólafsson:
Herra forseti. Á síðustu 50 árum hefur aðeins ein þjóðaratkvgr. farið fram á Íslandi. Það var þjóðaratkvgr. um lýðveldisstofnunina. Ég tel ekki við hæfi að næsta þjóðaratkvgr. verði þjóðaratkvgr. um bjór og segi því nei.