20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6988 í B-deild Alþingistíðinda. (6357)

156. mál, nýting ríkissjóðs á hluta af Seðlabankabyggingu

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Það er einkennilegt að takmarka ræðutímann svo mjög um þetta mál og síðan komi hér einn maður upp, sem er andvígur þessari sjálfsögðu og meinlausu till., og lýsi eftir því að ráðherrar noti þær fáu mínútur sem eftir eru, líklega 3–4 til þess að málinu verði eytt með þessum hætti. Þetta finnst mér ekki góð þingsköp.