14.11.1984
Neðri deild: 12. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (730)

Um þingsköp

Forseti (Karvel Pálmason):

Hv. 5. þm. Vestf. hefur lokið máli sínu eins og heyra má og þar með væntanlega af sér létt því sem á okkur hefur hvílt undanfarna daga. Ég mun að sjálfsögðu gera ráðstafanir til að koma þessu áleiðis til hlutaðeigandi aðila sem eru mér æðri hér. En eins og menn hafa heyrt er ærið gagnrýnisefni sem hv. 5. þm. Vestf. var hér um að fjalla og skulu ekki fleiri orð um það höfð.