21.11.1984
Neðri deild: 14. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Karvel Pálmason):

Svohljóðandi bréf hefur borist:

„Reykjavík, 21. nóv. 1984.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Birgir Ísl. Gunnarsson,

4. þm. Reykv.

Guðmundur H. Garðarsson hefur setið á Alþingi áður á þessu kjörtímabili og þarf ekki að rannsaka kjörbréf hans. Býð ég hann velkominn til starfa.