17.12.1985
Sameinað þing: 31. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1775 í B-deild Alþingistíðinda. (1401)

Um þingsköp

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Þar sem hæstv. forseti upplýsir að ekki sé hægt að taka neina af þeim fsp., sem nú eru á dagskránni, fyrir og ég á eina af þeim fsp., sem ég hef beint til viðskrh., um útlán banka og eiginfjárstöðu, þá vil ég spyrja hæstv. forseta að því hvort það gefist tími til þess fyrir jólaleyfi þm. að taka þessar fsp. fyrir, hvort það verði gert ráð fyrir tíma í Sþ. þannig að hægt sé að svara þessum fsp.