21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2106 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)

Kosning endurskoðenda Húsnæðisstofnunar ríkisins

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég geri ráð fyrir að hv. alþm. viti gjörla hverjar eru skyldur hv. alþm. Og ég hef ekki gert ráð fyrir því á þessum fundi að skylda þá sem ekki vilja taka þátt í atkvæðagreiðslu til þess að taka þátt í atkvæðagreiðslu. Ég vænti þess að menn sjái að það er ekki ástæða til þess að gera slíkar ráðstafanir á þessum fundi.