21.12.1985
Sameinað þing: 35. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2109 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

Kosning í bankaráð Útvegsbanka Íslands

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég mótmæli því að hér eru að hluta endurkosnir bankaráðsmenn Útvegsbanka. Slíka yfirlýsingu af hálfu þingsins um að þeir beri enga ábyrgð á ógöngum bankans þrátt fyrir það að í lögunum um bankann, bæði núgildandi og væntanlegum lögum, séu skýr ákvæði um ábyrgð bankaráðs á yfirstjórn og umsjón með málefnum bankans tel ég siðferðisbrot af hálfu Alþingis og kalda gusu framan í þjóðina.