27.01.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2113 í B-deild Alþingistíðinda. (1839)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 27. janúar 1986.
Halldór Blöndal 2. þm. Norðurl. e. hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Vigfús Jónsson, Laxamýri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Birgir Ísl. Gunnarsson.“
Vigfús Jónsson hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa á ný.
Þá hefur borist enn fremur svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 27. janúar 1986.
Svavar Gestsson varaformaður þingflokks Alþb. hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem Ragnar Arnalds 3. þm. Norðurl. v, er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans ósk með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, Þórður Skúlason sveitarstjóri, Hvammstanga, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Salome Þorkelsdóttir, - forseti Ed."
Þórður Skúlason hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.